Uppsjávarskip losnaði frá bryggju í veðurofsanum á Akureyri
Uppsjávarskip Samherja, Vilhelm Þorsteinsson, losnaði frá bryggju á Krossanesi á Akureyri þegar bryggjupollarnir brotnuðu í veðurofsanum. Lóðsinn tókst að koma mönnum um borð og sigla skipinu til öryggis.
Uppsjávarskip Samherja, Vilhelm Þorsteinsson EA-11, losnaði frá bryggju við höfnina á Krossanesi á Akureyri í veðurofsanum. Lögreglan á Norðurlandi eystra greindi frá því um hálf tíuleytið í gærkvöldi. Bryggjupollarnir höfðu brotnað undan álagi og skipið var komið nokkru frá bryggjunni og hékk aðeins á einni taug þegar viðbragðsaðilar komu á staðinn.
Mikið rót var á sjónum við höfnina og ekki var hægt að koma áhöfn um borð til að taka stjórn á skipinu með venjulegum hætti. Lóðsinn var ræstur út og tókst að koma mönnum í skipið sem gátu ræst vélarnar. Með aðstoð lóðsins var skipinu komið frá höfninni og því siglt að Oddeyrarbryggju. Ekki er talið að skipið sé tjónað en tjón á hafnarmannvirkjum í Krossanesi verður kannað betur síðar.
Veðurofinn olli fleiri vandamálum á Norðurlandi eystra. Björgunarsveitir þurftu að bregðast við þegar þak fór að fjúka af húsi á Ólafsfirði og rúða brotnaði í húsi í sama bæ. Björgunarsveitir á Ólafsfirði og Siglufirði sinntu þeim verkefnum og björgunarsveitin á Dalvík sinnti útkalli vegna foktjóns.

