Srdjan Tufegdžić og Nikolaj Hansen til KA
KA kynnti nýjan þjálfara og leikmann eftir fall úr Bestu deild. Srdjan Tufegdžić tekur við liðinu og Nikolaj Hansen verður nýr framherji.
KA kynnti í hádeginu nýjan þjálfara meistaraflokks karla í fótbolta og nýjan leikmann. Srdjan Tufegdžić mun stýra liðinu og Nikolaj Hansen er nýr framherji KA manna. Liðið féll úr Bestu deild í haust og mun leika í Lengjudeild, þeirri næstefstu, á næsta ári.
Srdjan Tufegdžić, eða Túfa eins og hann er yfirleitt kallaður, tekur við liðinu á ný en hann stýrði því frá 2015 til 2018. Síðast þjálfaði hann IFK Varnamo í næstefstu deild Svíþjóðar en var látinn fara þaðan í sumar. Þar á undan þjálfaði hann Val í Bestu deild, sem varð í 2. sæti deildarinnar og tapaði í bikarúrslitum sumarið 2025. Túfa stýrði KA upp úr næstefstu deild 2016 og sama verkefni bíður hans næsta sumar. Túfa er KA maður í húð og hár og lék yfir 100 leiki með liðinu frá komu sinni árið 2006. Hann skrifar undir þriggja ára samning við félagið.
Nikolaj Hansen hefur verið einn fremsti framherji landsins frá komu sinni til Víkinga árið 2017. Hann var fimmfaldur Íslands- og bikarmeistari með liðinu og hefur borið fyrirliðabandið. Nikolaj er 33 ára gamall en átti við meiðsli að stríða á síðasta tímabili. Hann skoraði alls 61 mark og lagði upp 19 í 177 leikjum í deild fyrir Víkinga. Hann skrifar undir þriggja ára samning við KA.


