Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir leggur fram frumvarp um fækkun lögregluembætta úr níu í þrjú

Dómsmálaráðherra Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir segir skiljanlegt að skoðanir séu skiptar á sameiningum lögregluembætta. Hún leggur fram frumvarp á haustþingi um að fækka lögregluembættum úr níu í þrjú stór embætti.

RÚV Innlent25. október 2026 kl. 14:12
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir leggur fram frumvarp um fækkun lögregluembætta úr níu í þrjú
AuglýsingatworkSveigjanleg skrifstofurými, fundaraðstaða og samvinnurými.

Dómsmálaráðherra Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir segir skiljanlegt að skoðanir séu skiptar á sameiningum lögregluembætta. Tuttugu og ein umsögn hafa borist í samráðsgátt um frumvarp hennar um fækkun lögregluembætta úr níu í þrjú, og umsagnarfrestur rennur út í dag. Yfirlögregluþjónar og starfsmenn lögreglu á Norðurlandi vestra og Vestfjörðum lýstu áhyggjum af áformunum.

Í færslu á samfélagmiðlum segir ráðherra að hún hafi verið ánægð með jákvæð viðbrögð lögreglumannanna og lögreglustjóra. Hún gerir sér grein fyrir því að skoðanir á leiðum að markmiðum verði alltaf skiptar. Frumvarpið sé stór kerfisbreyting, þörf og tímabær. Ætlunin er að stækka embættin og leggja fram frumvarp á haustþingi um að starfandi verði þrjú stór lögregluembætti í stað þeirra níu sem eru mjög ólík að stærð og burðum.

Markmiðið er að til verði tvö öflug landsbyggðarembætti og eitt á suðvesturhorninu. Með stærri embættum skapist forsendur til að byggja upp stærri teymi. Starfsstöðvar lögreglu verði jafnmargar og nú eru og starfandi lögreglumenn jafnmargir. Með þessu fyrirkomulagi verður mun meira jafnvægi milli embætta en nú er, þar sem lítil embætti eiga að takast á við sömu skyldur og mun fjölmennara lið lögreglu í stærri embættum.

Ákvörðunin um að fækka embættunum byggir á niðurstöðu stýrihóps sem byggir á ítarlegri greiningarvinnu. Hópurinn var skipaður Grími Hergeirssyni formanni Lögreglustjórafélagsins, Fjölni Sæmundssyni formanni Landssambands lögreglumanna, Höllu Bergþóru Björnsdóttur ríkislögreglustjóra og Páli Winkel og Drífu Kristínu Sigurðardóttur fulltrúum dómsmálaráðuneytisins.

Heimild:
Birt á Fréttavakt: 25. október 2026 kl. 14:12
AuglýsingatworkSveigjanleg skrifstofurými, fundaraðstaða og samvinnurými.

Tengdar fréttir