Franska hagkerfið dróst saman á þriðja ársfjórðungi
Franska hagkerfið dróst saman um 0,1 prósent á þriðja ársfjórðungi. Fjármálaráðherrann varaði við því að efnahagurinn gæti „rekist á vegg" án samþykktra fjárlaga.
Franska hagkerfið dróst saman á þriðja ársfjórðungi ársins, samkvæmt tölum sem birtust í dag. Verg landsframleiðsla dróst saman um 0,1 prósent frá júlí til september, að sögn frönsku hagstofunnar Insee. Fjármálaráðherrann varaði við því að efnahagurinn gæti „rekist á vegg" ef stjórnvöldum tækist ekki fljótlega að fá samþykkt fjárlög sem drægju úr hallanum. Áhyggjur af stöðu ríkisfjármála Frakklands hafa farið vaxandi á undanförnum mánuðum.



